17.08.2008 17:41:39 / -3b
Jæja krakkar.
Þar sem við strákarnir erum ekki með ykkur í bekk lengur vil ég þakka ykkur telpunum fyrir 3b, hann var osom.
Sjáumst.
Kv.Ellert
»
21.07.2008 19:28:21 / -3b
langaði að byggja upp smá stemningu fyrir tjaldferðinni! og mæli með
þessu skemmtilega vídjói af Ingó að dansa.. eða allavega tvífara hans
að dansa og syngja.
http://youtube.com/watch?v=VGjDeDN7q0g&feature=related
njótið. og já, hann er gaurinn í gula átfittinu.
hlakka til að sjá ykkur um helgina,
pingz
»
03.07.2008 22:01:08 / -3b
Okei, ég hringdi í manninn og við megum endilega mæta
þessa helgi, og þarna, þá þurfum við bara að ákveða hverjir eiga að
keyra! Hverjir bjóða sig fram? Anna M., Christine? fólk með bílpróf!
ekki allir með bílpróf. Og svo bara BYOB.
Einhverjar spurningar?
Ellert = 6944710
Finnbogi = 7703566
»
02.07.2008 21:01:57 / -3b
Jæja sælt veri fólkið.
Eru ekki bara allir ferskir?
En þarna, ég er bara að blogga til að þið haldið ekki að við höfum gleymt tjaldferðinni sem allir hafa biðið spenntir eftir og eru ekkert að þreytast á því að spyrja hvenær hún verði.
En aldeilis ekki, við Finnbogi höfum sko ekki gleymt henni.
Ég hringdi í manninn sem sér um tjaldsvæðið sem við höfum verið að pæla í, og þar var einhver útlensk kona sem sagði að hann væri í vikulöngum reiðtúr, hann kemur heim á morgun eða föstudag, þannig ég mun hringja aftur í hann þá.
En allavega, þá verður hún helgina 25.-27. júlí og við munum blogga meira seinna.
Bæbæ
Ástarkveðjur, Ellert
»
20.06.2008 01:03:04 / -3b
Ég tók þetta úr athugasemd frá mér í bloggið fyrir neðan þar sem að þetta var farið að vera full langt."
Ég þegi aldrei! ALDREI SEGI ÉG! En ástæða þess að það verður ekkert
úr tjaldferðinni þessa helgina er að við Ellert vorum ekki búnir að
gera ráð fyrir þessari dagsetningu. Ellert er til dæmis að fara til
útlanda og ég í Þórsmörk. Tjaldstæðið sem við höfum augastað á er hins
vegar bókað fyrstu helgina í júlí (en það er allt í lagi því að
orðrómur er um að ég haldi upp á afmælið mitt þá...) og við Ellert
töluðum helst um að það væri ágætt að hafa þetta einhvern tíman í júlí,
ef einhver hefur einhverjar athugasemdir við þetta þá endilega að tala
við annað hvort mig eða Ellert, þið getið líka hringt í mig í síma
7703566 ef það er eitthvað meeega mál en nú er ég búinn að setja upp
skoðanakönnun um hvaða helgi henti best og ég held að það væri ekkert
óvitlaust að fara svo bara eftir því (það er svindl að kjósa
tvisvar!!!), það er ekki hægt að gera öllum til geðs en ef að flestir
eru ánægðir þá nægir það mér. Svo ef þið eruð rosalega pirruð yfir
þessu skipulagi okkar þá er auðvitað alltaf hægt að skipuleggja sína
eigin ferð
"
-Finnbö
»
04.06.2008 20:31:51 / -3b
Hey kidz,
Við Elli erum komnir með heví sweet tjaldstæði sem þið fáið að vita meira um seinna í gegnum öruggari samskiptaleiðir en internetið en við ætluðum bara að tékka á því hvort það séu ekki allir til í að halda í leiðangur 13.-15. Júní?
holla ef þið eruð til í að koma og endilega segið líka ef þið getið verið á bíl!

i.cut.myself.so.i.can.feel.real.
»
02.06.2008 17:39:09 / -3b
það virðast alveg allir vera að taka vel í þessa hugmynd Imperators Caesars Fitty. Allir að koma með sinn eiginn mat og sukk og dýnur og svefnpokumað eigin vali (ef þið ætlið að sofa) .. og hlutir sem á eftir að redda:
lítið sætt grill
tjald/tjöld
staðsetning
dagsetning
hvort á að styðjast við lýðræði eða einræði
kostnaður (flöskurnar? 4000kellinn)
bílar
foreldri
..djók
borð og stólar??
fleira?
»
28.05.2008 18:16:33 / -3b
Jæja kids!
Hvernig gekk?

»
24.05.2008 21:50:56 / -3b
til hamingju með afmælið sólveig mín ;*
eigðu rooosa góðan dag!
kveðja frá
aldísi og öllum í 3.B =)

heitur afmælisgaur handa þér beibí, gjössovel
»
20.05.2008 16:44:24 / -3b
TIL HAMINGJU MEÐ PRÓFLOKIN!!
YEAH!
gangi ykkur vel B-eibís :*
..where do you go to my lovely?
(3K-væn vefsíða!)
»
19.05.2008 15:34:43 / -3b
Jæja!
Nú eru próflok á morgun og býst ég við að nokkrir séu orðnir óþreyjufullir í að fara að sletta úr klaufunum og kikja í eitt gott partý með bekkjarfélögum sínum.
En nú stöndum við fyrir einu vandamáli:
Enginn vill halda partý!
What to do, what to do!
Þið segið mér!!!!
munið aðeins 19 klukkutímar til stefnu..
(... haha og nú fatta allir hver "ég" er
)
»
17.05.2008 01:21:07 / -3b
Elsku elsku kæri bekkur!
Getur einhver mögulega boðið sig fram til að halda partý þann 20.um kvöldið?
Það væri nefnilega örugglega rosalega ánægjulegt að enda árið á skemmtilegu partýi og það lofa sko allir að haga sér ógeðslega vel og húsið þitt verður sko pottþétt gífurlega snyrtilegt eftir okkur
;">Svo ef þú hefur hjarta, þá muntu vilja hýsa okkur krakkana sem erum búin að
vera að læra af okkur rassinn

Gerðu það! 
ps: án þess að vilja eyðileggja gildi bloggsins þá vil ég bara benda
á þá skemmtilegu tilviljun að fyrsta JÚRÓVÍSJON undankeppnin verður 20. saaama dag
og við erum búin í prófum. sama dag og við komumst í sumarfrí. sama dag og okkur langar svooooo að tjútta. hversu æðislegt væri að hafa JÚRÓVÍSJON partí?
PRÓFLOK
+ SUMAR + JÚRÓVÍSJON = GAMANANGAJGKLD?
já takk bæ kveeeeeðja sóla sem skrifaði samt ekki litríka dóteríið fyrir ofan.
ok ég kann ekki að gera þannig að myndbandið sjáist en hérna er linkur á franska júrovísion lagið bara til að komast í sumargírinn:
http://www.youtube.com/watch?v=Vz58Hw9hldw
»
13.05.2008 22:15:41 / -3b
Hææææ hressi bekkur 
Ótrúúúúlega skemmtilega afmælið okkar verður haldið Föstudaginn 23.maí og allir
verða að mæta 
Mæting er 19:00-19:30 og húsið(garðurinn) lokar klukkan hálf 8. Ef mætt er seinna gætuð þið lent í því að fá fuglaflensu í jógúrtina ykkar.
Heimabanki verður við inngang þar sem hægt verður að leggja inná afmælisbörnin
en vinsamlegast athugið þó að 5000. krónur er lágmark á manninn.
Sólveig er búin að vinna baki brotnu við að setja saman badmintonvöll í
garðinum þar sem við munum halda veglegt badmintonmót. Vegleg verðlaun eru í
boði og er fólk vinsamlegast beðið að taka með sér badminton spaða ef völ er á.
Boðið verður uppá svið en fyrir Sólu þá ætlum við að tína sitt hvað úr garðinum
og búa til girnilegt salat og Superman vatn að drekka.
Afi hennar Sólveigar verður svo með uppistand en þess má einnig geta að hann verður dómari í badminton mótinu þar sem hann hefur nú unnið margan gullpeninginn. Ef áhugi er fyrir því er afi meira en til í að taka létta glímu við þá sem þora.
Eins og þið sjáið verður þetta þétt party sem þið viljið alls ekki missa af en
nú þarf Aldís að fara að sjóða egg handa systur sinni.
p.s. engir gestir eru leyfðir einfaldlega því að afi verður svo stressaður innan um fleiri en 19 manns.
p.s.2 þeir sem kommenta ekki eru bara persona non grata!
Kv. Sólveig og Aldís 


þarna er afli í öllu sínu veldi

Sóla við ætlum að reyna að gera svona salat handa þér, það vex reyndar ekki allt í garðinum sem þarf í það en ég meina hvað er ekki hægt að rípleisa með smá arfa
»
13.05.2008 00:33:54 / Christine
Er búin að setja glósur úr keisaraaldakaflanum

enjoy

Christine
oooog því hrafnhildur er líka ógeðslega dugleg að glósa gerði hún glósur úr
min ven thomas, alveg sjálf

http://3-h.bloggar.is/blogg/361965/#ath
»
12.05.2008 00:31:45 / -3b
Jæja krakkar.
Ég ætla að leggja hér á borðið hugmyndina hans Finnboga um að fara öll saman í tjaldferð bara einhverja helgi eða því um líkt og vera öll(eða þau sem koma allavega) að hafa það gaman.
Ég persónulega(Elli) fíla þennan hummara í botn og langar í þetta.
En hvað finnst ykkur þegnar góðir? Lútið þið Imperator Cesar Finnboga?
»
Síður:
1 2 3 ...
5